Enn er óvissustig á Norðurlandi vestra
Samkvæmt svari við fyrirspurn Feykis til Almannavarnardeildar Ríkislögreglustjóra fyrr í kvöld er ekki búið að lýsa yfir hættustigi í Skagafirði eins og sagt komið hafði fram í fréttum. Þar ríkir hins vegar óvissustig eins og víðast hvar annars staðar á landinu. Þá er óvissustig vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á Tröllaskaga.
Samkvæmt vindakorti á belgingur.is er veðurhæðin í Skagafirði nú um 27-33m/s. Á Blönduósi eru 33m/s en heldur hægari vindur víðast hvar í Húnavatnssýslum. Allir vegir í Skagafirði eru lokaðir samkvæmt vef Vegagerðarinnar en einhverjir vegir eru enn opnir í Húnavatnssýslum. Flestir aðrir vegir landsins eru lokaðir.
Borist hafa fréttir af slæmu veðri i með snörpum kviðum í Skagafirð. m.a. í Hegranesi, Blönduhlíð, Hjaltadal og fyrrum Lýtingsstaðahreppi. Feyki er ekki kunnugt um að tjón hafi orðið. Í Óslandshlíð fór rafmagn af að minnsta kosti einum bæ og víða annars staðar hafa verið truflanir á sjónvarpi og rafmagni.
Samkvæmt veðurspám átti veðrið að ná hámarki undir miðnætti svo vera kann að mesti veðurofsinn sé ekki genginn yfir Norðurland vestra enn. Bent er á að á vefsíðum ruv.is, Almannavarna, Veðurstofunnar og Vegagerðarinnar eru fluttar veður af ástandinu jafnóðum og eitthvað dregur til tíðinda.