Enn varað við skemmdum á Þverárfjallsvegi

Á Norðurlandi vestra eru flestir vegir greiðfærir en þó er hálka og éljagangur Öxnadalsheiði og snjóþekja á Siglufjarðarvegi. Á Þverárfjallsvegi er enn varað við mjög ósléttum vegi og hraði því tekinn niður í 70 km/klst. Ásþungi er takmarkaður við tíu tonn. 

Á Ströndum og Norðurlandi vestra verður Norðaustan 8-13 m/s og snjókoma eða slydda með köflum, en dálítil él á morgun. Hiti 0 til 5 stig að deginum, en víða næturfrost.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á miðvikudag:
Norðaustan 8-13 m/s, dálítil él N-til og vægt frost. Annars hægari breytileg átt og slydda eða rigning með köflum. Hiti 0 til 5 stig.

Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti):
Norðan 8-13 m/s og víða dálítil él, en úrkomulítið V-lands. Frost víða 1 til 6 stig, en frostlaust með S-ströndinni.

Á föstudag:
Hægir vindar og bjartviðri, en gengur í suðvestan 10-15 m/s með snjókomu, en síðar slyddu eða rigningu V-til um kvöldið. Hiti víða 0 til 5 stig, en vægt frost NA-lands.

Á laugardag:
Vestlæg átt með slyddu eða rigningu S- og V-lands, en annars þurrviðri. Éljagangur um kvöldið og kólnar.

Á sunnudag:
Útlit fyrir hvassa norðanátt með snjókomu N-til, en bjartviðri syðra. Kólnandi veður.

Á mánudag:
Hægt minnkandi norðanátt og birtir víða til. Kalt í veðri.

Fleiri fréttir