Er hretið á undanhaldi?
Ef spár ganga eftir gæti dagurinn í dag verið síðasti dagurinn í þessu norðanhreti en spá dagsins gerir ráð fyrir norðvestan 8-13 m/s, en hægari síðdegis. Skýjað með köflum. Hiti 2 til 8 stig að deginum.
Á morgun byrjar að snúast og á fimmtudag þá verður komin sunnanátt vonandi ekki með auknu öskufalli og um helgina verða suðlægar áttir og rigning. Ekkert voðalega hlýtt en þó hlýrra en verið hefur.