Erla Björk Örnólfsdóttir nýr rektor Hólaskóla
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur að fenginni tilnefningu háskólaráðs Hólaskóla- Háskólans á Hólum skipað Erlu Björk Örnólfsdóttur í embætti rektors Hólaskóla- Háskólans á Hólum til fimm ára frá 1. apríl nk. að telja.
Alls bárust sex umsóknir um stöðu Hólarektors og var Erla Björk eina konan í þeim hópi. Erla Björk hefur starfað sem forstöðumaður Varar – Sjávarrannsóknarseturs í Ólafsvík þar sem aðallega er rannsakað lífríki Breiðafjarðar.