Erlend samskipti í Blönduskóla

Á vef Blönduskóla birtast reglulega skemmtilegar fréttir af skólastarfinu. Meðal þess sem nú er á döfinni eru utanlandsferðir og móttaka erlendra gesta. Fjórir nemendur í unglingadeild fóru nýverið í fimm daga ferð til Noregs ásamt kennara.

Hópurinn heimsótti Nes ungdomsskole, en hann er við stærsta vatn Noregs, Mjösa, og er skólinn einn af þátttökuskólum í Comeniusarverkefninu. Samkvæmt frétt á vef Blönduskóla er óhætt að segja að ferðin hafi lukkast vel og allir komu glaðir heim.

Von er á góðum gestum til okkar á Blönduós 24. – 27. mars næst komandi, en þá munu nemendur og kennarar frá Portúgal, Spáni, Þýskalandi, Belgíu og Englandi dvelja á Blönduósi. Nemendur unglingadeildar sitja nú áhugasamir öll mánudagskvöld og prjóna vettlinga sem ætlunin er að færa gestunum við komuna enda sumir þeirra alls ekki vanir veðráttu eins og búast má við á Íslandi í mars.

Fleiri fréttir