Eva Pandora leiðir lista Pírata í NV kjördæmi
Eva Pandora Baldursdóttir frá Sauðárkróki leiðir lista Pírata í Norðvesturkjördæmi í komandi Alþingiskosningum. Þetta er niðurstaða úr endurteknum kosningum á röðun á listans en áður hafði listinn verið kærður til úrskurðarnefndar flokksins og honum hafnað í staðfestingarkosningu Pírata á landsvísu. Alls greiddu 277 atkvæði í kosningunum og valið stóð á milli 11 frambjóðenda.
Eva Pandora er fædd árið 1990, dóttir Baldur Haraldssonar múrarameistara og fyrrv. eiginkonu hans Pimpan Ushuwathana. hún er með BSc gráðu í Viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, lauk einu ári í MA námi í Menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst og er nú í MPA námi í Opinberri Stjórnsýslu við Háskóla Íslands.
Í öðru sæti lenti Gunnar I. Guðmundsson og Gunnar Jökull í því þriðja.