Eysteinn Pétur ráðinn til Hvatar og USAH
Blönduósingurinn Eysteinn Pétur Lárusson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Hvatar og Ungmennasambands Austur-Húnvetninga og tekur við því starfi í haust. Hann mun því flytja á heimaslóðirnar og kveðja Þrótt í Reykjavík eftir 10 ára dygga þjónustu.
Sagt er frá þessu á vef Hvatar. Þar kemur fram að Eysteinn hefur samið við aðalstjórn Þróttar um að fá sig lausan síðsumars en hann hyggst flytja með eiginkonu sinni Brynhildi Olgu og þremur sonum, Rúnari Inga (7), Haraldi Björgvini (4) og Lárusi Orra (1), á heimaslóðirnar á Blönduósi.
Eysteinn segir, á heimasíðu Þróttara, að fjölskyldan hafi fengið óvænt tækifæri til að hverfa úr ys og þys borgarinnar, ákveðið að slá til og prufa að búa í sinni gömlu heimabyggð í tvö til þrjú ár.
/Húni.is