Eysteinn Pétur til Breiðabliks
Blönduósingurinn Eysteinn Pétur Lárusson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar Breiðabliks. Undanfarin tvö ár hefur Eysteinn Pétur starfað sem framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Hvatar og Ungmennasambands Austur-Húnvetninga en var þar áður framkvæmdastjóri Þróttar í Reykjavík.
Eysteinn Pétur er kennaramenntaður og með EUFA A gráðu í knattspyrnuþjálfun, en hann á einnig að baki fjölmarga leiki sem leikmaður í bæði efstu og næst efstu deild í knattspyrnu með Þrótti.
Í fréttatilkynningu frá Breiðabliki segir að Eysteinn Pétur þekki vel til Blika en hann og fjölskyldan hans hafa búið undanfarinn áratug í Kópavoginum, fyrir utan árin tvö á Blönduósi og hafa strákarnir hans æft með félaginu.