Eyvindarstofa formlega opnuð um helgina

Eyvindastofa verður formlega opnuð þann 8. október nk. og fellur það vel inn í dagskrá Sögulegrar safnahelgi, sem er sameiginlegt átak safna og setra á Norðurlandi vestra um að lengja haustopnunartíma á svæðinu.

Hluti stofunnar var opnaður þann 4. júlí sl. en formleg opnun hennar fer fram kl. 14 á laugardaginn. Eyvindarstofa er staðsett á annarri hæð veitingastaðarins Pottsins Restaurant á Blönduósi, þar sem hefur verið komið fyrir þemasal um Fjalla-Eyvind og Höllu konu hans. Saga þeirra hjóna er mikilvægur hluti af menningu svæðisins og því hefur verið skapaður þar ævintýraheimur fyrir ferðamenn.

Útlit stofunnar er í stíl Evyindarhellis þar sem gestir upplifa sig í heimkynnum útlilegumannsins á Hveravöllum. Innanstokksmunir hafa verið færðir í stílinn og heyra má hljóð sem minna á hálendið, hverina og snarkið í eldinum. Þar er sögum Fjalla-Eyvindar er miðlað með myndefni og texta og boðið er upp á sérstakan útilegumat.

Fleiri fréttir