Fá ekki greitt fyrir aukasmalanir

Erindi frá Jóni Gíslasyni f.h. fjallskiladeildar Auðkúluheiðar, sem kynnt var á fundi sveitarstjórnar Húnavatnshrepps 9. okt. sl. og frestað afgreiðslu á var tekið fyrir á síðasta fundi hreppsnefndar Húnavatnshrepps. Erindið varðar afstöðu sveitarstjórnar til þess hvort sveitarfélagið komi með einhverjum hætti að greiðslu kostnaðar við aukasmalanir í haust vegna óveðursspár og farið var í að tilmælum sveitarstjórnar.

Sveitarstjórnin telur ekki rétt að taka þátt í kostnaði vegna aukasmalana í haust í ljósi álits Bændasamtaka íslands, sem leitað var eftir og óskar eftir því að fjallskiladeildir í sveitarfélaginu útbúi aðgerðaráætlanir um smalanir vegna hugsanlegra náttúruhamfara sem upp geta komið.

Fleiri fréttir