Fáir vilja sameina Norðurland vestra í eitt sveitarfélag

RHA-Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri  framkvæmdi dagana 17. – 24. maí s.l. símakönnun fyrir SSNV, meðal íbúa 18 ára og eldri í Bæjarhreppi, Húnaþingi vestra, Húnavatnshreppi, Blönduósbæ, Sveitarfélaginu Skagaströnd, Skagabyggð, Sveitarfélaginu Skagafirði og Akrahreppi þar sem íbúar voru spurðir um afstöðu þeirra til hugsanlegrar sameiningar og þjónustu sveitarfélaganna.

 

Tekið var lagskipt 800 manna úrtak en alls náðist í 726 manns eða tæp 91% úrtaksins. Það voru 529 manns sem samþykktu að taka þátt í könnuninni (73% þeirra sem náðist í) og 197 manns neituðu þátttöku (27% þeirra sem náðist í).

Um 54% þátttakenda er almennt hlynntir því að sveitarfélagið þeirra sameinist öðru eða öðrum sveitarfélögum. 61 þátttakandi tók ekki afstöðu til þess hvort hann væri hlynntur eða andvígur sameiningu og taldi að það færi allt eftir því um hvernig sameiningu yrði að ræða en fáir voru á því að sameina allt svæðið í eitt sveitarfélag.

Þátttakendur voru einnig spurðir út í ýmislegt er varðar þjónustu sveitarfélagana og sýna niðurstöður að íbúar eru almennt ánægðir með þá þjónustu sem sveitarfélögin á Norðurlandi vestra veita íbúum en almennt séð þá notfæra þátttakendur sér lítið þjónustu annarra sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Helst eru það sundlaugar, önnur íþróttamannvirki, verslun og menningartengd afþreying sem þátttakendur sækja til annarra sveitarfélaga.

Skýrsluna á heild má nálgast HÉR

Fleiri fréttir