Fákaflug 2021- skráningu lýkur í kvöld

Gæðingamótið Fákaflug verður haldið um helgina, dagana 14. og 15. ágúst, á Sauðárkróki. Fákaflug er rótgróið mót sem var á árum áður haldið á Vindheimamelum en undanfarin ár hafa fákar flogið á Sauðárkróki.
Keppt verður í í sérstakri forkeppni í barnaflokki, unglingaflokki, A- og B-flokki ungmenna, A- og B-flokki áhugamanna, A- og B- flokki, gæðingatölti og gæðingatölti áhugamanna. Einnig verður boðið upp á pollaflokk.
Skráningargjaldið er 3500 kr en frítt er í pollaflokk. Skráning fer fram á www.sportfengur.com þar sem mótshaldari er Skagfirðingur og lýkur henni í kvöld, fimmtudaginn 12. ágúst klukkan 20:00.
Það má bæta því við að Gæðingamótanefnd Skagfirðings óskar eftir einstaklingum til að aðstoða í gæðingamótanefnd.
/SMH