Fallþungi yfir 17 kg á Norðurlandi vestra
Bændablaðinu var fyrr í mánuðinum sagt frá því að meðalfallþungi lamba á landinu hafi verið 16,94 kg í ár sem er sá þriðji mesti í sögunni. Fallþunginn var mestur á Norðurlandi vestra, Vesturlandi og Suðurlagndi þar sem hann var alls staðar vel yfir 17 kg. Meðaleinkunn fyrir gerð var 9,45 og 6,39 fyrir fitu.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Stólastúlkur heimsækja Njarðvík í kvöld í úrslitakeppninni
Úrslitakeppnin í körfunni hefst í kvöld en þá mæta Stólastúlkur liði Njarðvíkur í Ice Mar-höllinni í Njarðvík. Lið Tindastóls lenti í sjöunda sæti í Bónus deildinni en góður stígandi hefur verið í leik liðsins og vann liðið fimm af síðustu sex leikjum sínum í deildarkeppninni. Lið Njarðvíkur hefur hins vegar verið í toppbaráttu í allan vetur og endaði í öðru sæti í deildinni en liðið er gríðarlega vel skipað og margir reynsluboltar í liðinu eins og t.d. Danielle Rodriguez og Brittany Dinkins sem hafa verið meðal bestu leikmanna deildarinnar síðustu ár. Leikurinn hefst kl. 19 og Feykir lagði nokkrar spurningar fyrir Israel Martín þjálfara.Meira -
„Vont er þeirra ránglæti“ | Högni Elfar Gylfason skrifar
Í þeim leiðinda veðrabrigðum með roki og snjókomu sem að undanförnu hafa verið að hrjá okkur Skagfirðinga líkt og aðra landsmenn hefur undirrituðum borist fyrirspurnir um fyrirkomulag snjómoksturs í Skagafirði. Við nánari skoðun kom ýmislegt í ljós sem ástæða er til að upplýsa íbúa sveitarfélagsins um.Meira -
Aukasýning á morgun
Veðrið hefur sett strik í ansi marka reikninga undanfarið og vegna veðurs þurftu nemendur í Grunnskóla austan Vatna að fresta sýningunni með Allt á Hreinu sem átti að vera í sl föstudagskvöld. Aukasýning verður á morgun þriðjudag 31. mars klukkan 20.Meira -
Vill sjá samfélagið þróast í takt við þarfir og væntingar íbúanna á Skagaströnd
Feykir sendir sveitarstjórunum fjórum á Norðurlandi vestra nýverið spurningar sem lúta að verkefnum sveitarfélaganna og framtíðarsýn. Unnur Valborg í Húnaþingi vestra hefur þegar svarað og nú er það Alexandra Jóhannesdóttir á Skagaströnd sem verður fyrir svörum. „Sveitarfélagið hefur verið í miklum uppbyggingar- og framkvæmdafasa undanfarin ár og við höldum áfram af sama krafti. Áhersla hefur einkum verið lögð á innviði sem styðja við atvinnulíf, þjónustu og lífsgæði íbúa, og þau verkefni sem fram undan eru endurspegla þá stefnu,“ segir Alexandra fyrst þegar hún er spurð um hver séu helstu verkefnin semSveitarfélagið Skagaströnd hyggst vinna að á árinu.Meira -
Grenvíkingar áttu ekki séns gegn sprækum Stólum
Tindastóll og Magni mættust á gervigrasinu á Króknum seinni partinn í gær en leikurinn var liður í 2. umferð Mjólkurbikarsins. Stólarnir höfðu áður unnið Knattspyrnufélag Fjallabyggðar í fyrstu umferðinni en Grenvíkingar hafa ekki fært Tindastólsmönnum mikla lukku upp á síðkastið en í gær varð breyting á. Lið Tindastóls átti glimrandi leik og lagði gestina 3-1 og mætir annað hvort liði Njarðvíkur eða Hvíta riddarans í 32 liða úrslitunum.Meira
