Farið í viðgerðir á Skrapatungurétt
Samþykkt hefur verið að ráðast í nauðsynlegar steypuviðgerðir á Skrapatungurétt til að bjarga henni frá yfirvofandi skemmdum. Er það nauðsynlegt til að koma í veg fyrir frekari skemmdir. Það eru Blönduósbær og sveitarfélagið Skagabyggð sem ætla að hafa samvinnu um verkið. Sagt er frá þessu á Húnahorninu.
Jafnframt ætla bæjarstjórn Blönduóss, í samvinnu við Skagabyggð, að gera úttekt og kostnaðaráætlun um aðrar nauðsynlegar viðgerðir á réttinni og verður gert ráð fyrir því við gerð fjárhagsáætlunar Blönduósbæjar fyrir árið 2014.
Skrapatungurétt var byggð árið 1957 að frumkvæði tveggja sveitarfélaga, Engihlíðarhrepps og Vindhælishrepps. Við sameiningu Blönduóss og Engihlíðarhrepps annars vegar og Vindhælishrepps og Skagahrepps hins vegar er réttin í umsjón þessara sameinuðu sveitarfélaga og upprekstrafélaga þeirra, en þau nýta réttina sem skilarétt, bæði fyrir sauðfé og hross.
Í mörg ár hefur Skrapatungurétt verið landsfræg sem stóðrétt í tengslum við ævintýrasmalamennsku á Laxárdal og er því ánægjulegt að sjá fyrir endann á þessari nauðsynlegu viðgerð.