Farið yfir helstu verkefni sumarsins á Blönduósi
Á fundi bæjarstjórnar Blönduósbæjar þann 11. september sl. fór bæjarstjóri yfir framkvæmdir sumarsins og verkefni haustsins.
Samkvæmt fundargerð voru endurnýjaðar og lagfærðar 10 heimtaugar í Vatnsveitunni. Ljósastaurar og fylling í götu við Smárabraut. Lóð Kvennaskólans var jarðvegsskipt og malbikuð.
Þá endurnýjaði Blönduósbær vatnslagnir þar, Síminn endurnýjaði sínar lagnir og Rarik skipti um hitaveitulagnir á svæðinu. Verkið er á vegum Byggðasamlags um atvinnu- og menningarmál. Rarik er að ljúka við framkvæmdir við dæluhús og Rarik stefnir að því að ljúka lagningu hitaveitu til Blönduós í haust. Framkvæmdum í Stekkjavík til að taka við sláturúrgangi stóðu yfir í sumar og er lokið.
Í haust stendur til að gera breytingar á samþykktum Blönduósbæjar, uppfæra þarf jafnréttisáætlun Blönduósbæjar, setja reglur um innkaup og samkvæmt 29.gr. sveitarstjórnarlaga þurfa sveitarfélög að setja sér siðareglur.