Farið yfir rekstur Blönduóss fyrstu 4 mánuði ársins
Á fundi bæjarráðs Blönduósbæjar í gær kynnti fjármálastjóri bæjarins rekstraryfirlit Blönduósbæjar fyrstu 4 mánuði ársins. Þar kom fram að bókaðar tekjur fyrstu 4 mánuði ársins námu alls 255.6 millj. kr en fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir tekjum að upphæð 640 millj. kr allt árið 2011.
Bókuð útgjöld fyrstu 4 mánuði ársins eru 231,8 millj. kr en fjárhagsáætlun ársins gerir ráð fyrir útgjöldum upp á 580,6 millj. kr allt árið. Niðurstaða úr rekstri fyrstu 4 mánuði er 23,7 millj. kr tekjur umfram gjöld en fjárhagsáætlun án afskrifta, verðbóta og söluhagnaðar gerir ráð fyrir 59,4 millj. kr tekjum umfram útgjöld. Fjárfestingar fyrstu 4 mánuði ársins eru engar, en gert er ráð fyrir 7 millj. kr í fjárfestingar árið 2011.