Farskólinn í Skagfirðingabúð í dag
Farskólinn – Miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra verður í Skagfirðingabúð í dag kl 15:30-18:00 að kynna starfsemi vetrarins. Að vanda verður fjölbreytt úrval námskeiða, lengri námsleiða og réttindanám í boði fyrir fullorðið fólk um allt Norðurland vestra.
Áhugasamir ættu því að bregða sér í búðina í dag og kanna hvað Farskólinn hefur upp á að bjóða.
Námsvísir haustannar er kominn inn á öll heimili og fyrirtæki á Norðurlandi vestra. Í Námsvísinum má finna námskeið af ýmsum toga: tómstundanámskeið, vottað nám til eininga, tungumál og starfstengd námskeið. Sjón er sögu ríkari.
Starfsfólk Farskólans reynir að fylgjast vel með hvaða námskeið fólk hefur áhuga á að sækja og tekur einnig þakklátt við öllum ábendingum.
Fyrsta námskeiðið hefst mánudaginn 9. september en það er ,,Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum", framhald frá því á vorönn. Nýtt námskeið er í burðarliðnum sem hefst fljótlega. Skrifstofuskólinn hefst um miðjan mánuðinn. Enn eru laus sæti í það nám.