Fasteignamat á Norðurland vestra hækkar um 7,0%
Mat fasteigna á Norðurland vestra hækkar um 7,0% samkvæmt nýju fasteignamati fyrir árið 2013 sem Þjóðskrá Íslands birtir í gær. Heildarmat fasteigna í landinu hækkar um 7,4% frá síðasta ári og er heildarmat fasteigna á Íslandi nú 4.715 milljarðar króna.
Fasteignamatið miðast við verðlag fasteigna eins og það var í febrúar 2012 og byggir á upplýsingum úr þinglýstum kaupsamningum, segir á vef Þjóðskrár Íslands. Samkvæmt hinu nýja fasteignamati hækka 125 þúsund íbúðaeignir á öllu landinu um 8,3% á milli ára og er samanlagt fasteignamat þeirra 3.105 milljarðar króna. Af þessum eignum hækkar mat á 90,3% eigna en mat á 9,7% eigna lækkar frá fyrra ári.
Á landsbyggðinni eru fasteignamat á sérbýli meira en á fjölbýli en á höfuðborgarsvæðinu er þessu öfugt farið, þar hækkar matsverð íbúða í fjölbýli meira en mat íbúða í sérbýli. Fasteignamat atvinnuhúsnæðis í landinu hækkar um 5,4% frá síðasta ári og er breytingin svipuð á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu. Frístundahúsnæði hækkar að jafnaði mest á milli ára, eða um 8,8%.
Frá síðasta ári hækkar fasteignamat á landinu mest í Vestmannaeyjum um 19% en í Reykjanesbæ hefur mat á fasteignum hækkað minnst eða um 0,6%. Hækkun fasteignamats í öðrum landshlutum er sem hér segir: Norðurland vestra 7,0%, Norðurland eystra 7,1%, Austurland 5,5%, Suðurland 5,9%, Suðurnes 2,7%, Vesturland 4,3%, Vestfirðir 6,3%, og Höfuðborgarsvæðið um 8,3%.
Hækkun fasteignamats 2013 | Sérbýli | Fjölbýli | Atvinnuhúsnæði |
Utan höfuðborgarsvæðisins | 5,4% | 3,4% | 5,3% |
Höfuðborgarsvæðið | 9,3% | 9,6% | 5,5% |
Landið allt | 7,9% | 8,7% | 5,4% |
Eigendur fasteigna geta nálgast mat á eignum sínum á upplýsinga- og þjónustuveitunni www.island.is og þurfa þá rafræn skilríki eða veflykil ríkisskattstjóra, sem auðvelt er að ná í hafi menn hann ekki tiltækan. Einnig verður hægt að nálgast fasteignamatið á heimasíðu Þjóðskrár.