Fastráðin sem skólastjóri við leik- og grunnskólann á Húnavöllum

Sigríður Bjarney Aadnegard hefur verið fastráðin sem skólastjóri við leik- og grunnskólann á Húnavöllum en hún hefur verið að sinna starfi skólastjóra við skólann undanfarið ár. Fastráðningin var samþykkt af hreppsnefnd Húnavatnshrepps á síðasta fundi hans sem fór fram 2. maí 2012.

Bókun hreppsnefndarinnar var svohljóðandi: „Hreppsnefnd Húnavatnshrepps samþykkir samhljóða að fara að tillögu fræðslunefndar og fastráða Sigríði B. Aadnegard sem skólastjóra við leik- og grunnskólann á Húnavöllum.“

Í kjölfarið hefur Sigríður Bjarney sagt aðstoðarskólastjórastöðu sinni við Blönduskóla lausri en hún var í ársleyfi þaðan, samkvæmt í fundargerð fræðslunefndar Blönduósbæjar frá 9. maí sl. Auglýsa þarf stöðuna lausa en Magdalena Berglind Björnsdóttir hefur sinnt því starfi undanfarið ár. Skólastjóra var falið að auglýsa stöðuna.

„Skólastjóri og fræðslunefnd þakka Sigríði kærlega fyrir gott samstarf og vel unnin störf og óska henni velfarnaðar í nýju starfi,“ segir í fundargerðinni.

 

Fleiri fréttir