Húnabjörg fylgir fiskibáti til hafnar

Húnabjörg, björgunarskip Landsbjargar á Skagaströnd.
Húnabjörg, björgunarskip Landsbjargar á Skagaströnd.

Björgunarbáturinn Húnabjörg kom 9 tonna fiskibáti til aðstoðar úti á Húnaflóa í dag og fylgdi honum til hafnar á Skagaströnd. Báturinn hafði fengið á sig brotsjó og komst sjór í stýrishús og vistarverur. Mbl.is greinir frá. 

Samkvæmt frétt Mbl.is hafði báturinn samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í gegnum neyðarrás um kl 12.40 í dag. Bát­ur­inn var stadd­ur á Húna­flóa, um 9 sjó­míl­ur norðvest­ur af Skaga­strönd.  

Þegar var haft sam­band við nærstadd­an fiski­bát, sem var stadd­ur u.þ.b. 8 sjó­mílna fjar­lægð. Áhöfn­ Húnabjargar, björg­un­ar­skips Lands­bjarg­ar á Skaga­strönd, var jafnframt ræst út. Húna­björg­in kom að fiski­bátn­um um kl. 13:15 og fylg­di bátn­um til hafn­ar á Skaga­strönd.

Fleiri fréttir