Fékk áminningu fyrir að taka sýni úr gosi
Héraðsdómur Norðurlands vestra úrskurðaði í dag að áminning gegn framkvæmdastjóra lækninga á Heilbrigðisstofnun Blönduóss skuli standa. Hann hafði látið rannsaka sýni úr gosdrykk læknis sem hafði ítrekað orðið uppvís að því að sofa í vinnunni.
Pressan.is greinir frá þessu en það var í apríl í fyrra sem forstjóri Heilbrigðisstofnunar Blönduóss réði til starfa lækni við stofnunina. Héðinn Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga, var á þessum sama tíma í orlofi frá 1. janúar til 31. ágúst.
Í starfsviðtali kom fram að læknirinn væri alkóhólisti en hann hafði ekki drukkið í mörg ár. Fljótlega eftir að hann hóf störf bárust tilkynningar frá starfsfólki sem hafði komið að lækninum sofandi á bekki á skrifstofu sinni. Gerðist það þrívegis á fyrstu þremur vikum hans í starfi.
Héðinn kom að máli við forstjóra stofnunarinnar og óskaði eftir því að læknirinn yrði látinn fara í lok reynslutíma, það er í lok júní 2010. Ekki var orðið við því og í júlí ítrekaði Héðinn þá skoðun sína að læknirinn væri óhæfur til starfa hjá stofnuninni og að hann treysti sér ekki til að vinna með honum. Í ágúst ítrekaði hann enn og aftur þessa skoðun.
Héðinn tók sýni úr gosdrykkjaflösku læknisins án hans vitundar og sendi til rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði og óskaði eftir því að leitað yrði að ávana- og fíkniefnum. Niðurstaða úr sýnatökunni leiddi ekkert í ljós. Fyrir það fékk hann áminningu sem hann var ekki sáttur við og höfðaði mál til að fá áminninguna niður fellda.
Sjá frétt á Pressunni.