Félags- og skólaþjónusta A-Hún. með opið hús
Í tilefni af formlegri opnun nýrrar skrifstofu Félags- og skólaþjónustu A-Hún. verður opið hús í dag frá klukkan 14-16 og eru allir íbúar sveitarfélaganna velkomnir í heimsókn.
Félags- og skólaþjónusta A-Hún. er til húsa á annarri hæð á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi og er gengið inn um inngang B og er staðsett í því rými þar sem áður var tannlæknir og margir þekkja sem gömlu heilsugæsluna.