Félagslegar leiguíbúðir á Norðurlandi vestra alls 174

Í samantekt Morgunblaðsins í dag um félagsþjónustu sveitarfélaganna kemur fram að alls eru um 5000 félagslegar leiguíbúðir á landinu. Þar af eru 174 á Norðurlandi vestra og skiptast þær í 114 félagslegar leiguíbúðir, 25 íbúðir fyrir fatlað og aldrað fólk og 35 íbúðir sem flokkast undir aðrar íbúðir en áður er getið.

Vitnað er til könnunar sem Varasjóður húsnæðismála gerði á leiguíbúðum sveitarfélaga árið 2012. Þar kemur m.a. að fjöldi félagslegra íbúða á hverja 100 íbúa var næstmestur á Skagaströnd, eða 5,91 á hverja 100 íbúa. Tekið er fram að í svo fámennu sveitarfélagið þurfa félagslegar íbúðir þó ekki að vera margar til að vera hátt hlutfall allra íbúða.

Í sömu könnun var spurt um rekstrarvanda sveitarfélaganna vegna leiguíbúðanna. Kom þar fram að rekstrarvandinn var algengastur í þremur sveitarfélögum, Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Algengustu ástæður rekstrarvandans voru þær að leigutekjur stæðu ekki undir rekstri.

Fleiri fréttir