Fellur ríkisstjórnin vegna málþófs?

-Stjórnarandstaðan stefnir að því að kjafta nýja stjórnarskrá stjórnlagaráðs í kaf á næstu dögum og endurtaka leikinn frá páskum. Komist stjórnarskráin ekki í þjóðaratkvæði í haust er ljóst að lítið stendur eftir langan feril sem byrjaði með þjóðfundinum 2010, segir Lýður Árnason læknir og liðsmaður Dögunar.

Lýður segir hræðslu sumra þingmanna við þjóðardóm megi skýra út frá þeim kerfisbreytingum sem hann gæti haft í för með sér. Þeir sjái illa fyrir sér nýja samfélagsuppbyggingu þar sem núliggjandi valdastoðum er raskað.  Því sé reynt að bægja frá nýjum vindum.

-Komist minnihluti þingsins upp með málþóf öðru sinni spái ég falli þessarar ríkisstjórnar enda ónýt stjórn sem engu kemur áleiðis.  Hvet landsmenn að fylgjast með framgangi þessa máls og sérlega málþófinu því í því kristallast niðurlæging þessarar áðurvirtu stofnunar, segir Lýður.

Fleiri fréttir