Fengu verðlaun fyrir framkomu og snyrtimennsku
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
07.05.2014
kl. 08.58
Átta meðlimir Lúðrasveitar Tónlistarskóla A-Hún fóru á Landsmót SÍSL (Samtaka íslenskra skólalúðrasveita) á Stykkishólmi í byrjun aprílmánaðar. Um 200 þátttakendur voru á mótinu og þeim skipt í þrjá styrkleikahópa.
Lúðrasveit Tónlistarskóla A-Hún var veittur bikar fyrir prúðmannlega framkomu og snyrtimennsku, en á vef Húna kemur fram að þetta er í þriðja skiptið sem sveitin fær þessi verðlaun.