Ferðaglaðir nemendur Húnavallaskóla

Vorverkefnið nemenda Húnavallaskóla þetta árið fjallar um sauðkindina og hófst það formlega með vettvangsferð þeirra ásamt kennurum á sauðfjárbúið á Hjallalandi og aðstæður þar skoðaðar. Á heimasíðu skólans segir að Einar og Sigga hafi tekið höfðinglega á móti hópnum.

Eftir að hafa skoðað, spáð og spekúlerað var gestum boðið uppá grillaðar pylsur og ís og allir skemmtu sér vel.  „Þökkum við Einari og Siggu kærlega fyrir að taka á móti hópnum, það er frábært að geta tengt skólastarfið með þessum hætti við samfélagið okkar“, segir á heimasíðunni.

Myndir úr ferðinni má sjá HÉR.

Þá héldu elstu krakkarnir af stað í skólaferðalagið sitt á þriðjudagsmorgun en ferðinni var  heitið til höfuðborgarinnar og daginn eftir til Kaupmannahafnar.

Fleiri fréttir