Ferðamaður lést við veiðar í Blöndu
Níræður ferðamaður frá Spáni lést seinnipartinn þann 5. júlí þar sem hann var við veiðar í Blöndu ásamt þremur samlöndum sínum. Dánarorsök er hjartastopp.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi var haft samband við neyðarlínu eftir að maðurinn hneig niður og fóru sjúkralið og lögregla á vettvang.
Lífgunartilraunir sem gerðar voru á honum á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi en báru ekki árangur og var maðurinn úrskurðaður látinn stuttu síðar. Sagt er frá þessu á Mbl.is