Ferðaþjónusta á Norðurlandi efld með reglulegu millilandaflugi um Akureyrarflugvöll
Í október sl. hófst undirbúningur þriggja ára markaðsátaks með samstarfi Markaðsstofu ferðamála á Norðurlandi, Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi Vestra, Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands auk fleiri aðila þar sem markmiðið er að fjölga störfum og efla heilsársferðamennsku með því að koma á reglulegu millilandaflugi um Akureyrarflugvöll.
Með flugi tvisvar í viku er hægt að fjölga störfum á Norðurlandi um 120 og auka veltu um 2 milljarða á svæðinu. Nýta á sóknarfærið sem skapast hefur með yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um eflingu vetrarferðamennsku og aukið fjármagn sem veitt verður til markaðssetningar og þróunar á næstu þremur árum. Með öflugu samstarfi fyrirtækja, sveitarfélaga og annarra hagsmunaaðila á svæðinu verður til aukinn slagkraftur sem getur skilað sér í stuðningi og fjármagni í verkefnið.
Í byrjun september verður formlega farið af stað með samstarfsverkefni Flugklasa og er óskað eftir að allir sem hagsmuna hafa að gæta af reglulegu millilandaflugi beint inn á Akureyrarflugvöll taki þátt í samstarfinu.