Ferðaþjónustubændur á Norðurlandi vestra fá viðurkenningu

 Á nýliðinni Uppskeruhátíð Ferðaþjónustu bænda veitti skrifstofa Ferðaþjónustu bænda sex bæjum innan samtakanna viðurkenningar. Er það í þriðja sinn sem skrifstofan veitir verðlaun sem þessi en viðurkenningar voru veittar í tveimur flokkum. Norðvestlendingarnir Arinbjörn á Brekkulæk og Þórólfur og Guðný á Sveitasetrinu Hofsstöðum voru meðal viðurkenningahafa.

Þórólfur og Guðný á Hofsstöðum (fyrir miðju) taka við viðurkenningu fyrir Framúrskarandi ferðaþjónustubær 2013. Mynd: sveit.is.

Í flokknum Framúrskarandi ferðaþjónustubær 2013 fengu Þórólfur og Guðný á Sveitasetrinu Hofsstöðum í Skagafirði viðurkenningu fyrir einstaka frammistöðu á árinu og byggist matið á umsögnum gesta auk þess sem leitað var umsagna erlendra ferðaskrifstofa. Þá var einnig horft til þeirra gæða sem staðurinn stendur fyrir að mati starfsfólks skrifstofunnar.  Auk þeirra Þórólfs og Guðnýjar fengu Ólafur og Kristín á Grímsborgum, og Vilborg á Ytra Laugalandi í Eyjafjarðarsveit viðurkenningu fyrir sömu frammistöðu.

Arinbjörn á Brekkulæk (lengst til hægri) tekur á móti viðurkenningu fyrir einstaka og vel útfærða hugmynd og frumkvæði að uppbyggingu í ferðaþjónustu. Mynd: sveit.is.

 

Í flokknum Hvatningarverðlaun Ferðaþjónustu bænda 2013 fékk Arinbjörn á Brekkulæk í Miðfirði viðurkenningu fyrir einstaka og vel útfærða hugmynd og frumkvæði að uppbyggingu í ferðaþjónustu sem miðar að skemmtilegri og innihaldsríkri upplifun fyrir gestina. Arinbjörn hefur í fjöldamörg ár boðið innlendum og erlendum ferðamönnum upp á fjölbreyttar hestaferðir þar sem gestirnir upplifa ekki einungis einstaka náttúru landsins, heldur er lagt upp úr því að þeir kynnist heimamönnum og fái góða innsýn í sveitalífið, íslenska menningu og siði.

Aðrir viðurkenningahafar í þessum flokki voru þau Harald og Bergþóra á Hótel Rauðuskriðu í Aðaldal og Björn Ingi í Gistihúsinu Kríunesi við Elliðavatn.

Sjá nánar á vef Ferðaþjónustunnar.

Fleiri fréttir