Ferðatrukkur útaf í Hjaltadal
Lögreglunni á Sauðárkróki barst beiðni um aðstoð vegna umferðaróhapps í Hjaltadal um hádegisbil í gær en þar hafði stór ferðatrukkur farið útaf Ásavegi, sem er malarvegur norðan Laufskálaréttar.
Á vef Lögreglunnar segir að ökumaðurinn og farþegi væru ómeidd en bifreiðin hafði lagst mjúklega á hliðina þegar vegaröxlin gaf sig undan þunga bifreiðarinnar. Verktaki var fenginn til að ná bifreiðinni á hjólin á ný og þá kom í ljós að bifreiðin var lítið sem ekkert skemmd. Þegar búið var að yfirfara bifreiðina á verkstæði og ganga úr skugga um að hún væri hæf til aksturs gat ferðafólkið haldið för sinni áfram.