Ferðaveður með versta móti
Í dag er suðaustan 10-15 og él á Ströndum og Norðurlandi vestra. Hiti um frostmark. Mjög djúp lægð gengur yfir landið með vaxandi austan- og norðaustanátt í kvöld, 18-23 m/s og slydda í nótt. Hægari um tíma í fyrramálið en snýst síðan í hvassa suðvestanátt, allt að 18-25 m/s á Norðurlandi með éljum eða slydduéljum og lélegu skyggni. Samkvæmt vef Vegagerðarinnar verður ferðaveður með versta móti víðast hvar í kvöld og nótt.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á fimmtudag (gamlársdagur) og föstudag (nýársdagur):
Sunnan og suðaustan 8-15 m/s og él, en hægari og þurrt á N- og NA-landi. Frost yfirleitt 0 til 6 stig.
Á laugardag:
Suðvestlæg eða breytileg átt, snjókoma og vægt frost, en rigning A-lands fram eftir degi. Él víða um land síðdegis.
Á sunnudag og mánudag:
Austanátt, úrkomulítið og svalt, en slydda eða snjókoma með köflum SA-til á landinu.