Ferðum áætlunarbifreiða frestað til morguns

Vegna ófærðar og slæms veðurútlits í dag hefur öllum áætlunarferðum sérleyfisbifreiða Sterna verið frestað til morguns. Áætlað er að farið verði frá Hellissandi til Reykjavíkur og Akureyrar kl. 07:45 og frá Stykkishólmi kl. 08:15.

Farið verður frá Reykjavík til Akureyrar, Búðardals og Hólmavíkur á morgun kl. 08:30. Einnig hefur ferðinni frá Akureyri til Reykjavíkur verið frestað til morguns og áætlað að hún fari kl. 08:30.

Veðurstofan gerir réð fyrir suðvestan 15-23 m/s með éljum og skafrenningi í dag. Lægir í kvöld og nótt, hæg breytileg átt á morgun og úrkomulaust að mestu. Frost 2 til 8 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:
Hæg vestlæg eða breytileg átt og bjart að mestu. Frost 0 til 12 stig, kaldast inn til landsins.

Á föstudag:
Sunnan 10-18 m/s og rigning eða súld, en úrkomulítið á NA-verðu landinu. Hlýnandi, hiti 3 til 9 stig síðdegis.

Á laugardag og sunnudag:
Suðlæg átt og væta með köflum, en þurrt að mestu á NA- og A-landi. Kólnar heldur.

Á mánudag:
Snýst líklega í suðvestanátt með snjókomu eða éljum og kólnandi veðri.

Fleiri fréttir