Ferðumst af öryggi um páskana

Líkt og endranær verða margir á faraldsfæti um páskana. Útlit er fyrir fremur kalda páska miðað við árstíma og má búast við slyddu eða frosti á nokkrum stöðum á landinu, jafnvel snjókomu. Færð kann því að spillast, hætt er við hálku og er fólk því eindregið hvatt til að aka varlega. Með góðum undirbúningi ferðalagsins og með öryggið að leiðarljósi ættu allir að komast heilir heim.

Ef bíll er ferðamátinn þarf að tryggja að hann sé útbúinn í samræmi við fyrirhugaða ferð. Til að mynda er himinn og haf á milli þess að aka um hálendið eða ferðast á þjóðvegum. Færð og veður þarf alltaf að skoða og taka mið af, sama hvert förinni er heitið.

Allir í bílnum eiga að nota bílbelti og börn einnig annan viðeigandi öryggisbúnaði. Farangur þarf að  festa niður. Við umferðaróhapp á 90 km/klst hraða getur höggþyngd tveggja kílóa fartölvu orðið vel yfir 200 kg. Alvarlegustu umferðarslysin verða á þjóðvegum en ekki í þéttbýli. Hraðinn er meiri þar og aukin hætta á alvarlegum árekstrum og bílveltum með alvarlegum slysum á fólki.

Talið er að 20% banaslysa í umferðinni hér á landi megi  rekja til þreytu. Það er því mikilvægt að skipuleggja tíma sinn út frá akstri og vera úthvíldur áður en lagt er af stað. Ef áfengi eða önnur vímuefni hafa verið höfð um hönd kvöldi fyrir akstur er nauðsynlegt að vera viss um að nægur tími sé liðinn frá því, áður en ekið er af stað. Sturta, kaffi, matur og önnur hindurvitni flýta engu þar um. Mismunandi er manna á milli hversu langur tíminn þarf að vera og hafa þarf í huga að veikindi og lyf geta hægt á niðurbroti áfengis í líkamanum.

Í útivistinni þarf að hafa forvarnir að leiðarljósi. Skoða aðstæður vel, þekkja takmörk sín og samferðafólks, taka tillit annarra t.d. í skíðabrekkum og nota öryggisbúnað eftir því sem við á í hverju sporti.

/Fréttatilkynning frá Vís

 

Fleiri fréttir