Ferjuðu sjómenn yfir Þverárfjallið
Það var mörg horn að líta hjá björgunarsveitinni Strönd í gær og verkefnin fjölbreytt. Fyrst voru björgunarsveitarmenn fengnir til að ferja mannskap yfir á Sauðárkrók í gærmorgun en sjómenn af Örvari voru á leið á sjó eftir hádegið. Þá voru þeir einnig fengnir til þess að draga fasta bíla, moka út fólk sem fennt var inni og snjó af þaki á einum stað.
Björgunarsveitarmennirnir lentu í ýmsu á leiðinni á Sauðárkrók en þeir ákváðu að reyna að fara Þverárfjallið þó það var sagt ófært, enda þungfært um Langadal og jafnvel ófært um Vatnsskarð.
„Það gekk hálf seint að komast af stað því staðurinn mátti heita ófær og biðum við aðeins meðan mokað var fyrir Víkina, það hefði sjálfsagt hafst að böðlast yfir þetta á Ford en betur vinnur vit en strit,“ segir á heimasíðu Strandar.
„Hér vestanmegin var ekki svo mikill snjór, nokkur smá höft hér og þar en þegar halla fór austur af versnaði færið til mikilla muna og var mikill ófærð á köflum. Fyrir utan eina smá festu gekk þetta hægt en örugglega og komum við á Krókinn um hálf tvö eftir hádegið,“ segir á heimasíðunni. Heimferðin segja þeir að hafa gengið í hálfgerðu brasi án þess að fara nánar út í það.