Feykir aðgengilegur á timarit.is

Feykir gerði samning við Landsbókasafn í vor um að mynda þær síður blaðsins sem ekki voru til í stafrænu formi. Nú hafa þær verið birtar á vefnum, alls um tíu þúsund síður. Feykir er því orðinn aðgengilegur á vefsíðunni timarit.is, frá fyrsta tölublaði sem kom út 10. apríl 1981 til ársins 2009. Það sem eftir stendur, til september 2015, mun verða birt á vefnum í september og svo uppfært árlega eftir það.
Ákveðið var að ráðast í verkefnið, að gera landsmönnum öllum kleift að fletta upp efni blaðsins á veraldarvefnum, í tilefni þess að Feykir fagnar 35 ára útgáfuafmæli á árinu. Ljóst er að efni þess hefur mikið heimildar- og menningarlegt gildi fyrir íbúa svæðisins og þá sem fjalla um það. Jafnframt tryggir þetta varðveislu alls efnis sem birst hefur í Feyki frá upphafi. Menningarsjóður KS og Uppbyggingarsjóður SSNV styrktu verkefnið.