Feykir í andlitslyftingu

Nú hefur ásýnd Feykis.is tekið á sig nýja mynd og breyst til mikilla muna. Er það von okkar að hin nýja síða verði lesendum miðilsins að skapi og þeir hafi ánægju af því að lesa hann.

Helstu breytingar má finna í því að notkunin verður einfaldari, nálgun frétta aðgengilegri, einhverjum þáttum hnikað til milli síða eða hefur verið kippt út og öðrum bætt við. Þá getur fólk sagt skoðun sína á fréttum og málefnum á athugasemdakerfi sem tengt er Facbook og eru bundnar vonir við að skemmtilegar umræður geti skapast á þeim vettvangi.

Þá fær Feykir-TV meira vægi en samkomulag hefur náðst við Stefán Friðrik Friðriksson um áframhaldandi samvinnu á þeim vettvangi.

Lesendur geta átt von á smávægilegum breytingum á næstu dögum meðan verið er að fínpússa síðuna.

Fleiri fréttir