Fimm kúabú í Húnaþingsdeildum verðlaunuð

Fimm kúabú í Húnaþingdeildum voru meðal alls 63 verðlaunahafa af landinu öllu þegar verðlaun voru veitt fyrir framleiðslu á úrvalsmjólk á árinu 2014. Flestir voru verðlaunahafarnir í Norðausturdeild.

Þeir sem hlutu verðlaun í Húnaþingsdeildum voru:

Brúsi ehf. Brúsastöðum A-Hún., Jens Jónsson, Brandaskarði A-Hún, Loftur S. Guðjónsson, Ásbjarnarstöðum V-Hún., Pétur Sigurvaldason, Neðri-Torfustöðum H-Hún og Ásgeir Sverrisson, Brautarholti V-Hún.

Samkvæmt reglum um verðlaunaveitingu fyrir mjólk í 1. flokki A þurfa innleggjendur að hafa lagt inn mjólk í eim flokk í öllum mánuðum ársins.

Mörk fyrir þann flokk eru það beint meðaltal líftölu sé jafnt eða minna en 25 þúsund, faldmeðaltal mánaðarins á frumum sé undir 220 þúsund, að engar lyfjaleifar finnist í mánuðinum og faldmeðaltal frírra fitusýra sé jafnt eða minna en 1,1 mmol/l.

Fleiri fréttir