Fimmgangur og tölt í Húnvetnsku liðakeppninni
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Hestar, Vestur-Húnavatnssýsla
10.03.2014
kl. 10.56
Næsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar er fimmgangur. Mótið verður laugardaginn 15. mars nk. og verður keppt í fimmgangi í 1. og 2. flokki og tölti T7 í 3. flokki og í tölti T3 í unglingaflokki, fædd 1997 og seinna.
Þátttöku þarf að skrá fyrir miðnætti miðvikudagsinn 12. mars. Skráning er á netafangið thytur1@gmail.com. Senda þarf kt knapa, IS númer hests, lið og upp á hvora hönd skal byrja. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Þyts.
Aðalstyrktaraðili Húnvetnsku liðakeppninnar er SKVH.