Fisk Seafood eignast helming í Olís

Útgerðafyrirtækin FISK Seafood á Sauðárkróki og Samherji á Akureyri eiga nú Olíuverzlun Íslands, Olís, að fullu með 50% eignahlut hvort eftir að hafa keypt fjórðungshlut Einars Benediktssonar og Gísla Baldurs Garðarssonar. Hvor þeirra hafa átt 12,5% hlut í félaginu frá árinu 2012 þegar Fisk og Samherji keytu sig inn í það.

Í Viðskipta Mogganum í dag kemur fram að  Gísli Baldur stígur úr stjórn Olís en Ásgeir Baldurs kemur inn og Baldvin Þorsteinsson verður stjórnarformaður og Heiðrún Jónsdóttir varaformaður.  

Saga Olíuverzlunar Íslands nær aftur til ársins 1927 þegar félagið er stofnað af Héðni Valdimarssyni sem varð fyrsti forstjóri þess, Magnúsi Kristjánssyni, Aðalsteini Kristinssyni, Hjalta Jónssyni, Guðmundi Kr. Guðmundssyni, Richard Torfasyni og Sigurði Jónssyni.  

Það var ekki fyrr en 1949 sem nafn Olís kemur fyrst við sögu og árið 1996 setti félagið á laggirnar sjálfsafgreiðslustöðvar undir nafninu ÓB-ódýrt bensín. Árið 2013 stofnaði Olís vörumerkið Rekstrarland og opnaði verslun undir því nafni í Reykjavík.

Olís rekur þrjár þjónustustöðvar á Norðurlandi vestra; á Sauðárkróki, Skagaströnd og á Laugabakka, og eina ÓB stöð á Blönduósi.

Fleiri fréttir