Fisk Seafood kaupir Soffanías Cecilsson

Grundarfjörður. Mynd: Mats.is
Grundarfjörður. Mynd: Mats.is

Samkomulag hefur verið gert um kaup Fisk Seafood ehf., sem er m.a  með starfsemi  í Grundarfirði og á Sauðárkróki um kaup á öllum hlutabréfum í Soffaníasi Cecilssyni hf., sem er með starfsemi í Grundarfirði. Í sameiginlegri fréttatilkynningu frá fyrirtækjanna segir að samkomulagið sé með fyrirvörum, m.a. um samþykki Samkeppniseftirlitsins. 

Með þessu hyggst Fisk Seafood ehf. styrkja sig í sessi sem eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins og treysta enn frekar fjölbreyttan rekstur í útgerð, fiskvinnslu og sölu sem byggst hefur upp á undanförnum árum. Ef af kaupunum verður mun starfsemi félagsins skipulögð með það að markmiði að tryggja áframhaldandi öfluga starfsemi í Grundarfirði.

Soffanías Cecilsson hf. hefur frá stofnun verið með starfsemi í Grundarfirði og er það mat eigenda félagsins að rétt sé og tímabært að koma fyrirtækinu í hendur aðila sem hefur það að markmiði að tryggja áframhaldandi öfluga starfsemi fyrirtækisins í Grundarfirði.
/PF

Fleiri fréttir