Fjárhagsáætlun Blönduósbæjar 2012 samþykkt
Bæjarráð Blönduósbæjar samþykkti fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 2012 en síðari umræða um fjárhagsáætlunina fór fram á fundi bæjarstjórnar þann 21. desember sl.
Samkvæmt áætluninni munu tekjur bæjarins vaxa um rúmar 50 milljónir frá endurskoðaðri fjárhagsáætlun 2011 en gjöld um 32 milljónir. Rekstrarniðurstaðan er áætluð jákvæð um 14 milljónir að frádregnum afskriftum samanborið við 9 milljóna króna neikvæða niðurstöðu í áætlun 2011.
Í fundargerðinni má finna eftirfarandi bókun sem forseti bæjarstjórnar lagði fram:
„Fjárhagsáætlun Blönduósbæjar 2012 var unnin af bæjarráði í góðri samvinnu meiri- og minnihluta. Tekjur vaxa um rúmar 50 milljónir frá endurskoðaðri fjárhagsáætlun 2011 en gjöld um 32 milljónir. Niðurstaða fyrir fjármagnsliði er jákvæð um rúmar 38 milljónir sem er mikil breyting frá neikvæðri niðurstöðu í ársreikningi 2010. Framlegð frá rekstri er áætluð 13,18% sem sýnir að reksturinn er í ásættanlegu horfi og veltufé frá rekstri verði 8,3% og stendur að mestu undir afborgunum langtímalána. Samkvæmt áætlun er gert ráð fyrir að skuldir samstæðunnar lækki.
Stefnt er að sölu einnar íbúðar en sveitarfélagið á 35 íbúðir.Þá eru lagðir fjármunir til ýmiskonar viðhalds og kaupa á búnaði í öllum deildum. Fjárfestingar eru í lágmarki eins og stefnt var að í langtímaáætlun 2012-2015 en munu fara vaxandi á komandi árum. Rekstrarniðurstaðan er áætluð jákvæð um 14 milljónir að frádregnum afskriftum samanborið við 9 milljóna króna neikvæða niðurstöðu í áætlun 2011.
Bæjarstjórn vill þakka bæjarráði og starfsmönnum Blönduósbæjar fyrir þá miklu vinnu sem liggur að baki fjárhagsáætlunarinnar. Lögð hefur verið áhersla á að verkefnið sé unnið af starfsmönnum og kjörnum fulltrúum með þátttöku allra þessara aðila í vinnunni. Bæjarstjórn hefur átt gott samstarf við alla þessa aðila við vinnu og þá stefnumörkun sem felst í fjárhagsáætlun Blönduósbæjar fyrir árið 2012.“
Að umræðu lokinni var fjárhagsáætlun 2012 borin undir atkvæði og samþykkt með fjórum samhljóða atkvæðum.