Fjárskortur hindrar endurnýjun á klippum
Öll klippuslys, sem slökkvilið Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu kom að á liðnu ári, kostuðu slökkviliðið um 1,8 milljónir króna og segir slökkviliðsstjórinn að slökkviliðið geti hvorki staðið undir þessum kostnaði né keypt nýjar klippur sem kosti 8 til 10 milljónir króna, en verið sé að leita leiða til að efla þann sérhæfða búnað sem þörf sé á.
Þetta kom fram í Morgunblaðinu í gær en þar bendir Jóhann K. Jóhannsson, slökkviliðsstjóri BAH, á að samkvæmt lögum, sem tóku gildi um síðastliðin áramót, séu klippurnar á forræði slökkviliða en þær hafi áður verið á forræði lögreglu. Slökkvilið hafi hins vegar almennt sinnt öllu í sambandi við klippurnar, menntað starfsmenn sína, útvegað klippur og séð um viðhald, auk þess að greiða allan kostnað, án lagaskyldu, þar til um síðustu áramót þegar ný lög tóku gildi.
Að sögn Jóhanns kosta klippur um 8-10 milljónir króna með öllum búnaði. Í umdæmi Blönduóss eru um 100 km af þjóðvegi 1. Mikil umferð er um svæðið og var þörf á sérhæfðum björgunarbúnaði í ríflega helmingi útkalla Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu á síðasta ári.
Jóhann segir að klippur slökkviliðsins hafi verið keyptar á sínum tíma fyrir söfnunarfé Rauða krossins. Þær séu orðnar 15 ára gamlar og standist ekki lengur þær kröfur sem gerðar eru til slíks búnaðar.
Sjá nánar HÉR