Fjárstuðningur vegna afleysingaþjónustu fyrir bændur sem fá COVID-19

Vinnumálastofnun og stjórn Tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi einstaklinga gert samkomulag við Bændasamtök Íslands um fjárstuðning vegna afleysingaþjónustu fyrir bændur sem veikjast af kórónuveirunni sem veldur COVID-19 sjúkdómnum og geta af þeim sökum ekki sinnt bústörfum. Samkomulagið er afturvirkt frá 15. mars og gildir til og með 31. maí.

Á heimasíðu félagsmálaráðuneytis kemur fram að samkvæmt samkomulaginu geti bændur sem veikjast af COVID-19 ráðið til sín starfsfólk tímabundið sem verktaka til að sinna afleysingum, að hámarki í 14 daga. Búnaðarsambönd deila verktökum niður, hvert á sínu svæði, og sjá um greiðslur til þeirra. Leitast verður eftir að ráða verktaka úr hópi einstaklinga sem eru skráðir atvinnuleitendur í viðkomandi umdæmi.

 „Bændur eru ekki undanskildir áhrifum af COVID-19 og það getur haft mikil áhrif á afkomu þeirra til frambúðar ef þeir veikjast og geta ekki sinnt bústörfum. Það er því gríðarlega mikilvægt að við stígum inn í og hjálpum þeim að tryggja áframhaldandi starfsemi á sínum búum. Þetta á sérstaklega við núna þegar styttist í að sauðburður hefjist ásamt því að bændur eru almennt að sinna vorverkum sem leggja grunninn að framleiðslu ársins. Á þessum tímum er því enn mikilvægara að styðja vel við þá, og tryggja þannig að við höldum áfram að framleiða allan þann mat í landinu sem við sem þjóð getum,” segir Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra, vegna málsins.

Nánar má sjá um málið HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir