Fjögur verkefni á Norðurlandi vestra fengu styrki
Úthlutun styrkja til atvinnumála kvenna fóru fram sl. þriðjudag og hlutu fjögur verkefni á Norðurlandi vestra styrki af þeim 36 verkefnum sem úthlutaðir voru á landsvísu en heildar upphæð styrkjanna hljóðuðu upp á alls kr. 26.010.000.
Alls bárust 297 umsóknir að þessu sinni en sérstök ráðgjafanefnd mat umsóknir, samkvæmt heimasíðunni Atvinnumálkvenna.is. 22 styrkir fóru til kvenna á höfuðborgarsvæðinu en 14 til kvenna á landsbyggðinni og eru styrkirnir veittir til markaðssetningar, vöruþróunar, launakostnaðar og ennfremur til gerðar viðskiptaáætlana. Þau verkefni á Norðurlandi vestra sem fengu styrki voru:
- Uppbygging Kanínu ehf - Birgit Kositzke á Hvammstanga – kr. 1.500.000
- Járnviðja - færanlegur skjólveggur – Guðbjörg Guðmundsdóttir á Sauðárkróki – kr. 850.000
- Sæluostur úr sveitinni - Stella Jórunn A. Levy og Sæunn Vigdís Sigvaldadóttir á Jörfa, V-Hún – kr. 600.000
- Culture tasting - Hildur Þóra Magnúsdóttir á Ríp Skagafirði – kr. 400.000
„Styrkir voru til fjölbreyttra verkefna og má þar nefna styrk vegna uppbyggingu kanínuræktar, til þarabaða á Reykhólum, vegna baðvörulínu, bílabingós, framleiðslu á duftkerjum, til framleiðslu jurtakryddsalts úr íslensku salti, handtuftaðra motta, markaðssetningu prjónaferða, snúningslaka, færanlegs skjólveggur, heilsukodda og ostagerðar,“ segir á Atvinnumálkvenna.is.
Hæstu styrkina hlutu Icelandic Cinema online kr. 2.000.000 vegna vöruþróunar verkefnisins Icelandic film locations og Tungumál og menning, kr. 1.600.000 vegna verkefnisins Lifandi tungumálakennsla.