Fjölbrautaskólinn settur í gær
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra var settur í gær á sal skólans og hófst kennsla samkvæmt stundaskrá í morgun. Meðal þess sem boðið er upp á skólaárið 2012-1013 er plastbátasmíði en það er afrakstur samstarfsverkefnis sem styrkt er af Leonardo-hluta Menntáætlunar Evrópusambandsins.
Að plastbátasmíðanáminu koma Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Sveitarfélagið Skagafjörður, Salpaus Further Education í Finnlandi og Den jydske Haandværkerskole í Danmörku. Námið er skipulagt í samvinnu við Siglingastofnun sem viðurkennir námið. Námið hefst með lotu á Sauðárkróki í byrjun september.
Á vef skólans segir að námið sé skipulagt sem lotubundið fjarnám, en kennsla í verklegum áföngum, vika í senn hvora önn, fer fram við FNV á Sauðárkróki. Námið samanstendur af 18 einingum á þessu skólaári og veitir viðurkenningu til plastbátasmíði fyrir þá sem hafa tilskylda starfsreynslu hjá viðurkenndu plastsmíðafyrirtæki. Nánari upplýsingar og skráning á skrifstofu skólans og í síma 455-8000. Skráningu lýkur 30. ágúst.
Innritun í fjarnám við FNV stendur yfir og lýkur sunnudaginn 26. ágúst. Upplýsingar um framboð er að finna HÉR og hefst kennsla þriðjudaginn 28. ágúst.