Fjölbreytt dagskrá á Húnavöku
Þaðan er hægt að sjá listaverk í vinnslu en þar verður málað útilistaverk á vegginn þar sem í gamla gamla daga stóð Shell bensínstöð. Listamaðurinn sem verkið málar heitir Ashley Lamb og er verkefnið styrkt af ýmsum fyrirtæknum á staðnum. Eftir að hafa rýnt í verk í vinnslu var komið við í Íþróttamiðstöðinni en var voru fullunnin verk í formi ljósmynda eftir 5 áhugaljósmyndara og voru myndirnar hver annarri glæsilegri. Enginn svikinn af því að kíkja á sýninguna og skella sér síðan í sund á eftir.
Enn bætist við útsauminn í reflinum. Mynd: Húni.is
Vefstóll á planinu við Kvennaskólann. Mynd: Húni.is
Stelpurnar á Heimilisiðnaðarsafninu. Mynd: Húni.is
Listaverk í mótun. Mynd: Húni.is
Brot af glæsilegum myndum í íþróttahúsinu. Mynd: Húni.is
Þetta er einungis brot af því sem hægt er að finna á dagskrá Húnavöku og eru svo sannarlega spennandi tímar framundan um helgina. Húni.is segir frá þessu.