Fjölbreytt störf í boði

Viltu vinna með unglingum, ertu kennari eða langar þig að vinna við afgreiðslu? Já þau eru fjölbreytt störfin sem eru í boði á vef Vinnumálastofnunar á Norðurlandi vestra þessa dagana en langt er síðan jafn mörg laus störf hafa verið boðin á síðu stofnunarinnar.

Flest eru störfin í Skagafirði en eitthvað er laust líka bæði á Blönduósi og á Hvammstanga. Ekki eru öll laus störf auglýst inni á vef Vinnumálastofnunnar og má því leiða að því líkum að eitthvað sé að glæðast lífið á vinnumarkaðnum og vonandi að þeir sem hafa verið án atvinnu finni sem flestir eitthvað við sitt hæfi.

Upplýsingar um laus störf má finna hér

Fleiri fréttir