Fjöldi námskeiða í nóvember

Farskólinn-miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra hefur auglýst mörg áhugaverð námskeið sem hefjast á næstu vikum. Nokkur námskeið fara af stað í Skagafirði í nóvember og búið er að dagsetja námskeið í fingravettlingaprjóni, jóga, núvitund, jólakrönsum, jólakonfekti, stollen brauði og handmálun og spaða.

Þá eru ýmis námskeið auglýst í desember og janúar. Skráningar og nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna á heimasíðu farskólans, í síma 455-6010 eða gegnum netfangið farskolinn@farskolinn.is. Minnt er á að flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína um 50-75% af námskeiðgjöldum.

Fleiri fréttir