Fjöldi útskriftanema FNV aldrei fleiri

Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 34. sinn við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki sl. laugardag 25. maí að viðstöddu fjölmenni.  Aldrei í sögu skólans hefur útskriftarhópurinn verið eins stór en alls brautskráðust 121 nemandi. Skólameistari, Ingileif Oddsdóttir, setti athöfnina og fjallaði m.a. um nýja menntastefnu og aðlögun skólans að henni m.a. með stórauknu framboði á styttri námsbrautum sem ætlað er að mæta þörfum atvinnulífsins og minnka brottfall, en brottfall úr framhaldsskólum á Íslandi er það mesta á Norðurlöndunum, segir á vefsíðu skólans. 

Ingileif sagði í erindi sínu að FNV bjóði upp á sameiginlegt fjarnám með sex öðrum framhaldsskólum á landsbyggðinni og mun næsta haust annast dreifnám á Hvammstanga, Blönduósi og Hólmavík. Allar þessar aðgerðir miða að því að draga úr brottfalli og auka hlut kvenna í nemendahópi skólans.

Í meðfylgjandi myndskeiði er viðtal við Ingileif.

https://www.youtube.com/watch?v=XiR6rcsyqI0

Eftirfarandi nemendur fengu viðurkenningar:

Íris Hilmarsdóttir
Viðurkenning fyrir framúrskarandi  alhliða námsárangur á   stúdentsprófi félagsfræðabrautar, viðurkenning frá sendiráði Kanada fyrir framúrskarandi námsárangur í ensku á stúdentsprófi og viðurkenning  frá danska sendiráðinu fyrir framúrskarandi námsárangur í dönsku á stúdentsprófi.

Sigurður Ingi Ragnarsson
Viðurkenning fyrir framúrskarandi  námsárangur í sérgreinum  húsasmíða

Ægir Björn Gunnsteinsson
Viðurkenning fyrir framúrskarandi  námsárangur í sérgreinum  húsasmíða

Elínborg Erla Ásgeirsdóttir
Viðurkenning fyrir framúrskarandi  námsárangur í sérgreinum náttúrufræðibrautar á stúdentsprófi

Guðmundur Ingvar Ásgeirsson
Viðurkenning fyrir framúrskarandi  námsárangur í sérgreinum  bifvélavirkjunar

Kolbeinn Helgi Gíslason
Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum  rafvirkjunar

Jakobína Björg Halldórsdóttir
Viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum sjúkraliðabrautar

Helgi Þór Emilsson
Viðurkenning  fyrir framúrskarandi námsárangur á vélstjórnarbraut  A

Elísa Björk Einarsdóttir
Viðurkenning og þakkir fyrir störf  á vettvangi  félagsmála nemenda.

Sjá nánar á fnv.is

Fleiri fréttir