Fjölgar um 2,8 % milli ára á Blönduósi

Á síðasta sveitarstjórnarfundi í Blönduósbæ lagði bæjarstjóri fram nýjustu íbúatölur, en samkvæmt þeim er fjöldi íbúa 1. september 2013 894 en á sama tíma árinu á undan 869. Fjölgun íbúa á milli ára er því 25 eða 2,8% fjölgun.

Íbúatala á Blönduósi hefur sveiflast um nokkur prósent milli ára síðastliðin tíu ár, en mest varð fækkunin frá 2004 til 2005 þegar fækkaði úr 953 í 917 milli ára, eða um tæp 4%.

Nú er hillir undir að 900 íbúa markið náist á ný, en árið 2011 voru íbúar 904. Á meðfylgjandi mynd má sjá íbúaþróun á Blönduósi árin 2001-2013.

Fleiri fréttir